Sunna Björk

Halló

22.02.2007 20:06:47 / sunnabb

brjálaður snjóstormur

Kominn tími til að blogga !!!

Við fórum á alveg snilldarþorrablót um síðustu helgi. Þetta var nú samt nokkurskonar Skagfirðingarþorrablót þar sem við vorum örugglega 40 manns sem tókum alveg heilt langborð. Við hittumst heima hjá okkur hérna í höllinni örugglega 20 manns. Þröngt mega sáttir sitja...eða standa en það var samt mjög gaman. Við tókum svo saman strætó á blótið. Helga Braga var veislustjóru og stóð sig alveg frábærlega. Hún dansaði líka magadans og kenndi konunum nokkur spor í tilefni konudagsins (daginn eftir). Jóni fannst samt brandararnir vera of miklir kvenrembubrandarar en það er  bara hans skoðun :) Maturinn var alveg frábær, allavega hangikjötið og lambakjötið , rófustappan og harðfiskurinn og borðaði ég allt of mikið :) Ég var samt ekki sú eina ! Sixties spilaði svo frá tíu til hálfþrjú og það var alveg geggjað gaman að fara á almennilegt í slenskt ball .Það eru myndir inna á síðunni hjá Margréti og Helga og það er linkur á þau hérna til vinstri :) Snillingurinn ég tók nefnilega með mér myndavélina og auka batterí af því að ég ætlaði að taka svo mikið afmyndum en þá voru bæði settin af batteríunum búin... alveg týpískt fyrir mig !

Ég er svo allavega byrjuð í skólanum á fullu, við byrjuðum að lesa upp efnið á síðustu önn fyrir lífeðlisfræðiprófið í síðustu viku þannig að það er allt of mikið að gera :/ Maður verður bara að komast í gegnum þetta svo hægt sé að taka langt og gott sumarfrí :)

Það er alveg "svakalegur" snjóstormur hérna á Jótlandi þessa dagana, þeas á danskan mælikvarða. En það er allavega búið að snjóa stanslaust í rúman sólarhring og fólki er ráðlagt að vera bara innandyra og sleppa því að keyra í vinnuna og svoleiðis.Þetta er samt soldið erfitt þegar maður þarf að treysta á strætó og hjólið sitt. Það var byrjað að snjóa í gærmorgun og það tók mig helmingi lengri tíma að hjóla í skólann en venjulega út af hagléli í augun :( Ég sat á lestrarsalnum til 5 og ákvað þá að reyna að koma mér heim en það var nú ekki jafn einfalt eins og venjulega. Það tók mig 45 mín að hjóla, reiða hjólið, draga hjólið heim í snjókomu og skafrenningi í gegnum skaflana, þetta var samt alveg ágætishreyfing....svona eftirá litið. Heppin að eiga svona fjallahjól hóst hóst !!!!!

Í morgun snjóaði svo ennþá og engir strætóar keyrðu og ekkert búið að moka nema hringvegina. Jón og einn sem hann vinnur með keyra saman á vinnubíl í vinnuna svo hann komst í morgun en þeir örfáu sem mættu voru svo hræddir um að snjóa fastir inni fóru bara allir heim fyrir hádegið ! Ég skellti mér á fjallafákinum mínum í skólann í morgun , þeas dró hann út á veg og lagði ekki í skaflana á hjólastígnum þannig að ég fór bara göturnar. Meiri frekjan í þessum bílstjórum að flauta á mann villevæk bara því maður þarf nauðsynlega að mæta á fyrirlestur í ónæmiskerfinu og í bekkjartíma í DNA klónun klukkan 8 um morguninn :( Það var samt þvílíkt fyndið að vera á ferðinni fyrir 8 í morgun, fólk var labbandi út um allt eins og í stórslysamynd þar sem enginn veit hvert hann á að fara. Þegar ég var hjólandi í háskólagarðinum í skíðagallanum mínum og gönguskónum með trefil fyrir andlitinu, kófsveitt á því að "berjast" í gegnum skaflana þá mæti ég einni í háhæluðum, támjóum stígvélum , stuttu pilsi og í þunnum jakka, ofboðslega hlýtur að vera gott að búa í háskólagarðinum :/

Þeir voru að sýna í fréttunum að á hraðbrautunum eru hermenn á skriðdrekum að hjálpa fólkinu sem er fast. Það er ótrúlegt að það er ekkert svona mokurnar system í bæjunum eða neitt. Það er reyndar líka þannig að allar eru á sumardekkjunum og spóla af stað eins og þeir myndu gera um hásumar , frekar fyndið að fylgjast með því.

Það á að snjóa áfram í nótt og í fyrramálið svo við höldum að við verðum bara heima á morgun, það tekur því ekki fyrir jón að fara fyrir 2-3 tíma og ég nenni varla að brjótast í gegnum hjólastígana :(

En allavega þá er allt gott að frétta af okkur :)

Ætla að fara að slappa af yfir sjónvarpinu :)

hejhej

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.01.2007 14:18:39 / sunnabb

Gleðilegan bóndadag :)

Það er ósköp rólegt hérna í DK hjá okkur eins og vanalega.

Um síðustu helgi fór ég reyndar út að borða með dönsku vinkonum mínum. Þetta var tyrkneskur staður og næstum helmingurinn af matseðlinum var lambakjöt, sem er alveg stórskrýtið í Danmörku þar sem lambakjöt er lítið sem ekkert borðað. Ég smakkaði það ekki því ég var alveg viss um að það myndi ekkert jafnast á við það Íslenska. Ekkert er jafngott og íslenskt lambakjöt, hvað þá þegar það er skotið á eigins jörð og reykt upp úr eigins skít mmmm....  Já en allavega þá er hún Stine bara farin til egyptalands í nokkra daga og ég er ekki frá því að ég sé soldið afbrýðisöm nema það að það eru miklar líkur að maður verði  bara sprengdur í loft upp þarna niður frá   :(  En hún hlýtur að skila sér heim aftur.

Í byrjun vikunnar sáum við þarna heimildarmyndina um kallinn sem borðaði bara á McDonalds í heilan mánuð (Super size me) og við urðum alveg dauðskelkuð. Ekki það að við borðum e-ð óhollt eða stundum Mc Donalds heldur bara hvað er hægt að gera sjálfum sér á svona stuttum tíma. Mann langaði nú bara að fara út að hlaupa (þeas mig en ekki Jón) þarna um kvöldið eftir að við sáum þetta og ég er ekki frá því að við séum byrjuð að borða meira af gulrótum heldur en venjulega hahaha... þessi mynd ýtti mér líka aðeins áfram í að lesa í lífefnafræðinni og ég er ekki frá því að hún er orðin örlítið meira spennandi... en bara örlítið !!!

En annars ganga dagarnir hjá mér bara þannig að ég les lífefnafræði hérna heima á daginn meðan Jón er að vinna, nema í dag því ég er að baka snúða mmmm... (áhrifin af heimildarmyndinni eru að dvína) !!

Ég sá alveg frábært myndband á blogginu hjá honum Óskari kollega mínum og það er ekki frá því að maður fái bara fordóma fyrir kananum en hérna er linkurinn:

  http://www.shoutfile.com/v/gSfSsCpR/Why_People_Believe_Americans_Are_Stupid

 Þetta er algjör snilld og pottþétt skýringin á því að bush var kosinn forseti!

Já og í gær kom bara snjókoma og ég er ekki frá því að það hafi verið svona 5cm snjólag yfir öllu í svona 3 tíma en svo kom rigning...  Ég dreif mig auðvitað í búðina í skíðagallanum og á hjólinu til að upplifa snjó nr. 2 í vetur.

Jæja ég ætla að koma mér út í smá stund, maður verður bara heimaskrýtin að hanga svona heima allan daginn aleinn :$ En það er nú hittingur hjá Margréti Helgu í kvöld svo ég held að ég sleppi við skrýtinina í bili :)

hejhej

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 20:09:54 / sunnabb

hmmm....titill...?

hhæhæ allir og gleðilegt ár !!!!

Ég beið lengi eftir að andinn náði yfir mig og ég er ekki frá því að hann svífi yfir mér á þessari stundu.

Það var ekkert smá gott að vera heima um jólin og hitta alla aftur. Saknaði samt soldið mikið að hitta þau sem fluttu á Ísafjörð en það verður bara að bíða þangað til í sumar :S Það vantaði allavega marga í jólaboðinu á jóladag og heima á gamlárskvöld, soldið skrýtið.

Við komum út aftur 4 jan og rétt misstum af síðustu beinu lestinni til árósa þannig að við þurftum að fara á Hovedbanegård í Köben og bíða þar í einn og hálfan tíma. Við höfðum samt nóg að gera því það er svo mikið að skrítnu fólki þarna og það er alveg ótrúlega ágætt að sitja á köldum, hörðum trébekk, borða tópas og fylgjast með fullum grænlendingum og öðru furðufólki :D Við komum ekki heim fyrr en um miðja nótt og ótrúlegt en satt þá voru Jói Spritt og Tumi Tígur (fiskarnir) alveg sprelllifandi, sem er alveg stórmerkilegt þykir mér eftir 2 vikur. Þeir voru soldið sloj svona fyrst en hresstust strax eftir að við gáfum þeim að borða. Þeir eru samt heldur grennri en vanalega en þeir máttu svosem alveg við því greyin. Þeir átu samt soldið mikið af trjánum í búrinu þannig að við þurfum víst að fara að fjárfesta í nýjum plöntum  í vikunni. Við erum samt búin að redda pössun fyrir næsta frí en einn sem vinnur með Jóni vorkennir þeim svo mikið að hann ætlar að passa þá næsta sumar :)

Við erum að komast í okkar rútínu aftur, Jón byrjaður að vinna og ég les hérna heima á meðan hann er í vinnunni (hef ekki nennt að hjóla í skólann í roki og rigningu). En skólinn byrjar svo hjá mér aftur 29 jan.

Já og svo vil ég óska Margréti til hamingju með að komast inn í hjúkkuna :) Bless og takk fyrir í dag :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.06.2006 08:35:55 / sunnabb

Heim á morgun :)

Ahhhh....lendi á köldum klakanum kl. 21 á morgun....vá ég hlakka til. Það gengur reyndar hræðilega hjá mér að pakka niður (nú væri gott að hafa mömmu til að hjálpa sér, hún er nefnilega snillingur í svona veseni). Ég er að fara í blóðbankann og donere og svo þarf ég að koma fiskagreyjunum mínum í fóstur, góðar fréttir frá þeim : þeir/þær/þau eru byrjaðir að sjá hvornannan og út !!!

Hver er tilgangurinn að hafa yfir 20°hita úti þegar það er bara skýjað allan daginn, og ég nýbúin að kaupa mér ný sólgleraugu :frown:

Ég ætla að athuga hvort ég geti lokað töskunni !

hejhej (ekki oft sem ég hef skrifað hérna inn með 3 daga millibili )


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 12:06:21 / sunnabb

SUMARFRÍ !!!!!!!!!!!!!!

Loksins, loksins komið sumarfrí !!! Við vörðum æsispennandi lífeðlisfræðiverkefnið okkar um bjúg í morgun (það er í alvöru spennandi Dagný Bj.!!) og það gekk bara ljómandi vel. Fengum reyndar enga alvöru einkunn bara "bestået". Kennarinn sagði reyndar að við öll höfum verið í kringum 10 svo það er bara mjög gott. Ég var líka mjög stolt af sjálfum mér því að ég talaði í 10 mín stanslaust og svaraði fullt af spurningum og það gerðist bara einu sinni að orðið sem ég ætlaði að segja hvarf úr hausnum á mér, en það er syndrom sem ég þjáist oft af þegar ég á að flytja eitthvað fyrir framan fullt af fólki !

Það er búið að vera svo þvílíkt gott veður upp á síðkastið að það er svakalegt !!! Næstum 30° forsælu og glampandi sól. Maður hefur ekki getað gengið í almennilegum fötum í langan tíma því maður svitnar bara eins og grís :S  Ég er búin að vera þvílíkt mikið úti og "lesa" til að fá sem mest út úr góða veðrinu áður en ég kem heim í kuldann. Við Dagný og Lene skelltum okkur á ströndina um síðustu helgi og það var alveg geggjað, ég meira að segja synti pínu í sjónum !!! Ströndin er heldur ekkert svo langt í burtu, tekur bara svona 20-25mín að hjóla....maður á pottþétt eftir að fara oft ! Það er samt alveg týpiskt að þegar maður loksins er í sumarfríi er bara skýjað og spáð rigningu :frown:

Ég er búin að vera að rífast soldið mikið við skattinn hérna í Dk með það að ég þarf að skila einhverju plaggi til Lín frá skattinum sem segir að ég sé tekjulaus. Ég sótti um þetta plagg fyrir næstum 2 mánuðum og svo hringdi ég fyrir 2 vikum og útskýrði fyrir e-m góðum manni að ég þyrfti nauðsynlega að fá þetta fyrir 20 júní því að þá færi ég heim. Hann sagði mér að hringja aftur í þessari viku en að þá ætti það að vera komið, sem ég og gerði, og þá lenti ég á einhverri þvílíkri frekjukellingu sem sagði að ég ætti bara að bíða eins og hinir og að þetta ætti að vera komið í október !!!! Hvað er að fólki...henni gat ekki verið meira sama um að ég þyrfti þá bara að lifa á loftinu, sama hvað ég reyndi að útskýra það fyrir henni !!! En svo kom snillingurinn Jón Anton í heimsókn og sótti um einhvern veflykil handa mér svo ég gat bara sótt plaggið á netið. Helv... fíflin þarna hjá skattinum voru ekkert að asnast til að segja mér að það væri hægt..neinei, ég átti bara að lifa við það að fá engin námslán !!!

En allavega þá er ég búin að vera ein hérna í Dk í 3 vikur þar sem mamma, pabbi og erla fóru heim þá (og jón 1 viku fyrr ). Það er búið að vera frekar rólegt hjá mér og ég hef bara verið að vinna í þessu verkefni með stelpunum og að hanga úti ! Það var þvílíkt gott að fá familíuna í heimsókn og núna hlakka ég þvílíkt mikið til að fara heim á þriðjudaginn og hitta alla !!

Við vorum að tala um það í dag að núna erum við búnar með 1/4 af náminu og ætli það sé þá hægt að segja að maður sé 25 % læknir ....við komumst að þeirri niðurstöðu að það sé alveg hægt :haha:

Jæja , ég ætla að halda áfram að pakka niður og fara svo að þrífa búrið hjá greyið fiskunum...ég held að þeir geti varla séð hinn annan lengur, og hvað þá út, því vatnið er svo skítugt (sorrý Jón) !!!

Hilsen nilsen


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.05.2006 18:59:12 / sunnabb

jammogjæja

hæhæ. Ég hef soldið mikið að gera en ég set e-ð hérna inn þegar mamma, pabbi og Erla eru farin heim, þeas á sunnudaginn.


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.04.2006 20:23:53 / sunnabb

Sumarið er komið.....loksins

Þá er sumarið komið í Árósum. Það var 30° hiti úti á stéttinni okkar í skjóli og sól en rétt yfir 15° í forsælu. Það er spáð alveg frábæru veðri út vikuna og um 20°hita á þriðjudaginn.Við skelltum okkur í Bilka í dag þrátt fyrir strætóverkfall, við vorum bara sniðug og tókum rútuna :lol: Það er nú samt frekar pirrandi að strætóbílstjórarnir eru alltaf í verkfalli (4 verkfallsdagurinn í þessari viku). Ég þarf alltaf að taka rútu niður á rútubílastöð fyrir 6 á morgnana og labba svo þaðan á lestarstöðina. Það er nú reyndar ekki langt en bara óþarfa vesen finnst mér. Jón hefur bara hjólað í vinnuna í staðin fyrir að taka strætó en finnst samt skárra að slappa af í strætónum á morgnana í staðin fyrir að hjóla í rigningunni. Það er alveg þvílíkur munur núna að vakna svona snemma á morgnana því það er næstum orðið alveg bjart. Okkur líður ekki lengur eins og við séum að vakna um miðja nótt.

Ég fékk sent páskaegg frá henni mömmu minni en ég fékk það ekki fyrr en þriðjudaginn eftir páska....það var samt allt í lagi því ég var í fríi og sat bara heima og hafði það notalegt. Takk fyrir pakkann !!!!  Ég var reyndar mjög pirruð út í post Danmark því ég fór á laugardaginn fyrir páska (snemma um morguninn því það lokaði snemma) á pósthúsið til að sækja pakkan og þá sagði kellingin að hann væri ekki kominn. En þegar ég kom heim aftur og kíkti í póstkassann var miði frá póstinum að pakkinn minn væri kominn og þá var einmitt búið að loka pósthúsinu :whut: Ég var samt ekkert lengi í fýlu út í póstinn því ég fann bara það góða við að borða eggið eftir páska , týpísk ég :haha: Við skelltum okkur á Ice Age 2 í páskafríinu og hún var bara mjög góð og mæli ég með henni. Allaveg hló ég alveg helling. Páskarnir voru annars bara mjög rólegir hjá okkur, við vorum bara mest heima í rólegheitum. Við fórum samt á föstudaginn langa í Bazar vest sem er svona arabamarkaður rétt hjá þar sem jón vinnur. Það var alveg stórfurðulegt allt þarna inni og alveg stappað af fólki. Það er nú meira draslið sem sumar búðirnar þarna selja en það er samt alveg þvílíkt gott úrval af ávöxtum og grænmeti og allt alveg þvílíkt ferskt. Við keyptum alveg helling af vínberjum og pistasíuhnetum mmmmm.....

Annars er ég bara alltaf í Viborg í klínik. Ég er komin á skurðdeild og er búin að vera núna í 1 viku á þvagfæraskurðdeild og byrja svo á mánudaginn á meltingarfæraskurðdeild. Þannig að núna geng ég um í hvítum klossum og grænum fötum...eins og í bráðavaktinni og scrubs...og finnst ég vera alveg svakalega merkileg :haha:  Við hlæjum oft að því að nafnskiltið okkar er svona aðvörunarrautt en skilti allra hinna eru bara hvít ;) . Maður fær að prófa alveg helling í klíníkinni. Ég er búin að taka blóðprufu úr slagæð, setja upp nálar, leggja þvaglegg og fleira. Ég er líka búin að vera með í aðgerð þar sem aðstoðarlæknirinn var alltaf kallaður út þannig að ég aðstoðaði skurðlækninn og fékk svo að hefta í lokin (svona í staðinn fyrir að sauma)....þvílíkt gaman:D

Á fimmtudaginn komumst við reyndar ekki til viborgar því að lestin sem var á undan okkur klessti á bíl 5 km frá viborg þannig að við sátum föst í klukkutíma í Rödkærsbro sem er bara rétt hjá, ásamt um 100 öðrum. Það voru engar rútur eða bílar sem gátu skutlað okkur á leiðarenda þannig að við tókum lestina bara aftur heim. Það er svosem alltaf gott að vera í fríi reglulega ;)

Ég er búin að fá að vita að ég verð að vinna á heilsugæslunni og í heimahjúkrun í sumar og ég held að það verður mjög gaman. Svo er líka alltaf frí um helgar. Mér finnst vera þvílíkt stutt eitthvað í sumarfrí...strákarnir koma eftir rúma viku...svo mamma, pabbi og erla....og þá eru bara um 4 vikur þangað til að ég kem heim...skrýtið hvað tíminn líður hratt:S

Ég ætla að fara að reyna að reka Jón út tölvunni, hann keypti sér nefnilega nýjan playstation 2 leik í dag í Bilka og nú er kl. að verða 22.30 á laugardagskvöldi ...að nenna þessu ;)

jæja bið að heilsa....


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 18:41:49 / sunnabb

Long time, no seen !!!!

Þið segjið það já.....  Það er alveg slatta mikið búið að gerast hjá mér upp á síðkastið !

Skelltum okkur á árshátíð íslenskra læknanema í DK. Það var þvílíkt gaman og geðveikt gott að borða.

Fór á grímuball í stærðfræðimatsalnum (hljómar mjög skemmtilega) í gervi Silvíu Nóttar. Ég var í skólanum til 17 og mætti í partý 18.30 sem þýðir að ég var undir klukkutíma að setja stríðsmálninguna framan í mig, rífa gömlu gallabuxurnar mínar og (ó)greiða á mér hárið sem var mjög tímafrekt. Ég hjólaði í fyrirpartý í -5° með hárið svona fínt og máluð eins og ég væri frá annari pláhnetu og lokaði alltaf augunum þegar ég mætti einhverjum svo ég þyrfti ekki að sjá svipinn. Ég kom samt við hjá honum Arabanum vini mínum og honum fannst ég vera bara alveg stórglæsileg (frekar skrýtin gaur)! Ég var náttúrulega eina Silvia Nótt á staðnum og enginn vissi hver ég var sem var bara ágætt ! Það gat allavega enginn gagnrýnt búninginn minn J Ég skemmti mér allvega vel og hjólaði heim í annarlegu ástandi um 2 leytið á miðvikudagskvöldi (á sjálfum öskudeginum), mætti engum sem betur fer ! Christina á mynd af mér einhversstaðar. Kannski ég fái hana hjá henni og set hérna inn J

Ég fór líka út að borða á einhvern oggupínuponsulítinn afrískan veitingastað með dönsku vinkonum mínum. Það var alveg þvílíkt huggulegt þarna inni, matsalurinn var örugglega hærri en hann var breiður og var bara pláss fyrir svona 20 í sæti. Við bjuggumst við að það væru sebrahestar og e-ð álíka á matseðlinum en það var bara kjúklingur og nautakjöt eins og alls staðar annarsstaðar í Danmörku. Hvar er hugmyndaflugið !!! En það var samt þvílíkt gott að borða þarna og það toppaði alveg kvöldið að fara á McDonalds og fá okkur Sunday mmmmmm......það geri ég sko aftur, næstum alveg eins og emmessís mmmmm......

Ég ætlaði að byrja að hreyfa mig fyrir alvöru og fór á pólóæfingu með Þurý og Birnu (á 2 og 1 önn). Við syntum í næstum klukkutíma og var mjög fínt í upphitum og í ½ fyrsta setti og þá bara hættu upphandleggirnir á mér að virka og neituðu gersamlega að hreyfa sig meira. Ég hefði samt getað synt þetta allt á fótum...ekkert mál þar en ég hélt að hendurnar væru að detta af. Við fengum svo svona fínar hettur með svona plasti fyrir eyrun og bandi undir hökuna (svaka fínt) spiluðum póló. Ég og Birna skildum nú varla reglurnar og ég var svo þreytt að mig langaði bara mest til að drukna en þetta var samt þvílíkt gaman. Ég hef samt ekki farið aftur því ég er byrjuð í klíník og vakna kl. 5 á morgnana svo það er ekkert sérlega skarplegt að vera á æfingum til 23.30 á kvöldin.

Ég er búin að vera í klíník á lyflækningadeild fyrir sykursjúka og nýrnaveika í 2 vikur. Ég er í svona fínum hvítum sloppi með hlustunarpípu í vasanum. Þetta er mjög gaman, það er alltaf stofugangur á morgnana og svo fáum við að sjá fullt af rannsóknum og svoleiðis. Ég sá líka þegar það var verið að leggja gangráð í sjúkling sem var mjög spennandi. Ég á eftir að vera á þessari deild í viku í viðbót og svo fer ég á skurðdeild þar sem gerðar eru hjarta og æða- , þvagfæra- og meltingafæraaðgerðir. Ég hlakka þvílíkt mikið til að fara þangað því þar er miklu meira að sjá og maður fær að sauma og taka þátt í aðgerðunum. Það versta er að ég þarf að ná lestinni til Viborgar rúmlega 6 og sitja í henni í klukkutíma og korter. Ég þarf að leggja af stað heimanað um hálf sex og er ekki komin aftur fyrr en um 17 og þarf að vera sofnuð kl. 21 þannig að ég á ekki mikið líf þessa dagana. En það er stutt í páskafrí Víiíííííííí!!!! Sofa út !!!!!!

Á laugardagskvöldið var páskafrokost hjá nýja bekknum mínum og fengum við tyrkneskan mat og hann var alveg þvílíkt góður. Það eru 2 múslimastelpur í bekknum og mamma þeirra er með veisluþjónustu. Það var fínt að hitta alla og kynnast þeim aðeins betur. Samt leiðinlegt að það sé búið að stokka upp gamla bekknum okkar.

Ég fór og hitti Gyðu , Þurý og Birnu á kaffihúsi í gær og við sátum bara og spjölluðum, svaka huggulegt ! E-ð sem við þurfum að gera miklu meira af J 

Ég held bara að nú sé vorið komið í Danmörku, allavega er hitinn yfir 10°á hverjum degi og svona vorlykt í loftinu , bara gott :haha:

Ég ætla að fara að sofa, þarf að vakna kl. 5 L og svo er ég líka á sólarhringsvakt þannig að ég segi bara góða nótt !!

 

 



Hilsen !!!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 11:59:33 / sunnabb

Ég veit, ég er hrædilega léleg í thessu !

Annars er bara ágætlega nóg ad gera….en samt ekki , thad er víst ad madur vinnur best undir smá pressu og tidsnød. Ég er annars bara í skólanum allan daginn 2 daga í viku og bara fyrir hádegi hina dagana...sweeet!  Thad er samt ágætlega mikid ad lesa en thad er bara svo erfitt ad koma sér af stad thar sem thad eru engin próf og engin pressa sem fylgir theim. Ég ætladi sem sagt ad vera rosa dugleg ad sitja á lessalnum í dag en var nærri sofnud eftir hálftíma....svo ég fór bara í tølvuna til ad halda mér vakandi.

Føgin sem ég er í eru bara alveg ágæt fyrir utan sálfrædi... hún er bara killer. 3. klst fyrirlestrar og samskiptatímar thar sem vid eigum ad tala saman um efnid....ég held ad thad sé bara ekki til neitt leidinlegra, nema kannski thýska med Ævari Buhtman í fjølbraut....en ég er samt ekki alveg viss !!! Svo erum vid líka í verklegu sygdomslære thar sem vid lærum m.a. ad mæla blódthrýsting, hlusta á hjarta og lungu og sprauta J Bara gaman!!

Vid skelltum okkur á Íslendingathorrablót um helgina og var alveg bara thónokkud gaman (mig dreymir ennthá um rófustøppu...mmmmm..). Vid fórum med Dagnýju, Jóni og Jurgu og var mikid sungid, dansad og drukkid. Jón Anton vann í happdrættinu ferd til Íslands svo thau Jurga koma og heimsækja okkur í sumar ;) Thad er alltaf svo mikid af furdulegu fólki á thessum thorrablótum sem minnir mann bara á thad hvad madur er heppinn ad vera svona nokkurnveginn edlilegur.

Næsta laugardag er svo Árshátid Íslenskra læknanema í DK hérna í Århus og ætlum vid Jón ad fara! Thad á líka ad skýra litlu frænku hans Jóns á laugardaginn og vid bídum spennt J

Annars erum vid ekki búin ad gera neitt merkilegt svosem nema fara í bíó og svoleidis. Ég er reyndar búin ad vera veik í 2 daga, helvítis kvef, hausverkur og pínu hiti en nú er ég fín. Ég pantadi mér mida heim 20 júní, hlakka ekkert smá til J, beint á Akureyri...ekkert smá snidugt ! Mamma, pabbi og Erla ætla svo ad koma í maí og horfa á Eurovision hjá okkur og verda í viku J Hvernig fannst ykkur annars Eurovision ? Mér fannst thetta vera bara langskársta lagid thó ad hún verdi ørugglega med einhver leidindi tharna úti ! Thad lá vid ad madur bara lækkadi nidur vid hvert lag og fór ad leika sér á netinu eda e-d, alveg stórskrýtid !

Thid verdid bara ad fyrirgefa mér ad thetta er næstum ólesanlegt....ég er bara med danskt lyklabord!

Já og Gummi og Helga....Til hamingju med nýja húsid !

Jæja best ad fara nidur í lessal og sofna L

hejhej


» 16 hafa sagt sína skoðun

19.01.2006 11:18:07 / sunnabb

frí

Jæja, alltaf gaman að vera í fríi ..... Skellti mér í smá verslunarleiðangur í síðustu viku. Fór í storcenter nord og svo bara niður í bæ. Ég var víst í búðum frá 10 um morguninn til 4 um daginn...ágætur vinnudagur þar á ferð J en allavega verslaði ég alveg nóg (maður verður nú líka að verðlauna sjálfan sig einhvernveginn).

Á föstudaginn fór ég í partý til Christine og svo með bekknum mínum á social club. Það var geggjað gaman og ekkert smá langt síðan maður fór í bæinn J Við komumst samt að því nokkrar að litlar stelpur eiga bara að drekka litla bjóra (sérstaklega þegar þær hafa ekki smakkað áfengi í fleiri mánuði!!!!).

Á sunnudaginn komu Valdi frændi og Lóa í heimsókn og á mánudaginn var sko allur dagurinn undirlagður í verslunarferðum fyrir utan smá tíma í Den Gamle By. Valdi stóð sig eins og hetja í öllum búðunum, ég hélt að hann myndi gefast upp strax J Takk fyrir komuna !!

Síðan þau fóru er ég bara búin að sitja hérna heima og góna út í loftið og peppa mig upp í einhver húsmóðurstörf. Ég er alveg hræðilega léleg í öllu svona (þið sem sáuð herbergið mitt í gamla daga vitið alveg hvað ég er að tala um- en ég er þó miklu duglegri núna) en við Jón sömdum um að ég myndi sjá um þetta meðan ég er í fríi og hann að vinna og ég stend við það :/ Ég bakaði meira að segja pönnukökur um daginnJ. Ég er samt búin að taka fram saumadótið mitt bara svona til að hafa e-ð að gera því ekki nenni ég út. Það er nefnilega búið að snjóa núna í 3 daga og það er alveg skítakuldi ! Ég hlakka bara til að byrja í skólanum aftur, þó það sé gott að sofa út og svona, bara svona til þess að hitta fólk yfir daginn !!!

Jæja ég nenni þessu ekki lengur .....

hejhej


» 8 hafa sagt sína skoðun

12.01.2006 08:24:46 / sunnabb

3 semester......Here I Come !!!!

Náði báðum prófunum og fæ að halda áfram jibbíííííí.....og þarf aldrei að læra 2000 bls af anatómíu utanað aftur  jibbíííííí...... Ég er ekkert smá ánægð og svo er ég líka í fríi til 30 jan , gæti það verið betra ? Ég titraði svo mikið þegar ég kíkti á mína einkunn að ég gleymdi alveg að gá hvernig einkunirnar lágu (hvort margir höfðu náð og svol.) en ég náði og fékk góðar einkunnir (þó það skipti nú ekki öllu máli). Ég held að flestir úr mínum bekk hafi náð, það voru ekki nema 5 eða 6 sem féllu og flestir af þeim meiga taka upptökupróf !

Ég pantaði mér hlustunarpípu á ebay í gær (núna getur maður farið að safna dóti) fyrir klinikina á 3 semester. Þær eru nefnilega 3x ódýrari þar en niðurfrá í medicinerladen, sama gerð og allt ! Alltaf að spara J Það fjölgar alltaf í dótakassanum mínum, ég á reflexhamar (jarðaberja, ekkert smá flottan) og jólagrænt augnreflexljós (hlýtur að heita þetta) fyrir. Ég ákvað því að hafa hlustunarpípuna mín bara svarta svo ég liti ekki út fyrir að vera einhver furðufugl (það var meira að segja hægt að fá  bleika, fjólubláa, græna og bláa). Ég kaupi mér bara bleika næst J

Já, þannig að ég er bara í fríi en það er verst að ég kann ekki að vera í fríi hérna úti.... Ég vakna sjálf kl. 8 á morgnana, þeas ef ég sofna aftur eftir að jón vaknar kl. 6. Það gerðist nefnilega ekki í gær svo ég lagðist fyrir framan sjónvarpið , setti dvd disk í og ætlaði heldur betur að sofna en nei..... kl. 8 var ég búin að horfa á heila bíómynd. Mér leið eins og versta sjónvarpsfíkli!

Ég ætlaði að hringja á studiekontoret (einhverskonar skólaskrifstofa) í gær og beið í ½ tíma þar sem var sagt “Du er nummer 2 i köen” á 20 sek fresti, ég var liggur við byrjuð að fá svona kipp í augað loksins þegar ég varð nr. 1 og þá þurfti ég bara að bíða i 5 mín. En svo loksins þegar var svarað kom það í ljós að það eru 2 svona skrifstofur og tókst mér einmitt að velja vitlaust.....alveg týpískt ég !!!! Það var held ég 3 sek. bið á réttu skrifstofuna þegar ég mannaði mig upp í að hringja þangað !!!

En jæja, best að fara að skella sér í sturtu... ætla nefnilega að fara í storcenter nord í dag og kíkja á nokkrar útsölur....fyrst maður fær nú námslán J

 

 



hejhej


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 15:03:59 / sunnabb

Búin í prófum

Loksins loksins búin. Ég var í munnlegri histologi í dag og stóð mig bara með prýði. Ekkert smá ánægð. Ég hélt að kallinn væri að grínast þegar hann sagði einkunnina mín eftir prófið. Ég dró líka frekar auðveld præparöt (hjartavegg og þvagblöðru) svo ég var frekar heppinn.
Ég er bara búin að sitja í dag og horfa á gamla ER þætti í sjónvarpinu og njóta þess að vera ekki með hnút í maganum og þurfa ekki að gera neitt sérstakt. Yndislegt. Fæ reyndar út úr hinu á morgun og nú er bara að vona ....
Það var ekkert smá gott að koma heim í jólafrí og ég held að mér hafi bara tekist að hitta næstum því alla ættingjana mína á þessum 10 dögum. Það var nú líka mikið fjör á heimilinu í kringum jólin og ekkert smá gaman að hafa alla litlu krakkana heima. Það var ekkert smá skrýtið þegar allir voru farnir hvað það var hljótt. ég sat milli mömmu og pabba fyrir framan sjónvarpið og þau hrutu bara í kór, frekar fyndið !
Það er annars allt gott að frétta frá okkur. Ætlum að fara í bilka í vikunni til að kaupa nýtt sjónvarp, það verðust víst að vera hægt að sjá stöðuna uppi í horninu á fótboltaleikjunum ;) Annars verða vonandi bara rólegheit það sem eftir er af mánuðinum hjá mér þar sem ég á ekki að byrja aftur fyrr en 30 jan.
Ég ætla að vera ekkert smá dugleg að blogga á næstunni, þarf víst að bæta upp fyrir sl. mánuði.

hejhej


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.12.2005 19:57:24 / sunnabb

lesilesiles

Hæhæ mér leiðist. Jón er að gera við hjólið mitt, það hefur nefnilega ekki getað bremsað í viku og það er frekar þreytandi að þurfa alltaf að stökkva af því og hlaupa með því til að reyna að stoppa (sérstaklega með 15kg af bókum á bakinu) hahaha...

Annars er lítið að frétta, fórum reyndar síðasta föstudag í bæinn að kaupa jólagjafir. Það var opið til miðnættis af því það var verið að kveikja á jólaljósunum. Það var einhverskonar jólasveinaskrúðganga og allir fengu karmellur....alltaf gaman að fá nammiJ Við náðum allavega að kaupa nokkrar gjafir og svo keypti ég líka 3kg af vínberjum fyrir tíkall nammnamm.

Jón skellti sér á tónleika með Mugison á laugardagskvöldið (mig langaði svo mikið að fara með en ég þurfti að lesa buhuhu...)

Við getum ekki beðið eftir að koma heim , erum meira að segja búin að panta lestarmiðann og allt. Bara 21 dagur í dag og það gera akkúrat 3 vikur....sem þýðir

Já svo er hún litla systir bara komin í hljómsveit, það er nú ekki e-ð sem maður hafði búist við, en sniðugt samt. Það er hægt að kíkja á www.sorinlinxmedia.com  !!!

Sko núna er Jón bara búin að gera við hjólið og er meira segja að þrífa það og bóna, oh hvað ég er heppinn J

 

 



Jæja ég ætla að njóta þess að horfa aðeins á sjónvarpið fyrir svefninn, langur dagur á morgun

 

 



hejhej


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.11.2005 17:26:58 / sunnabb

hefur einhver heyrt þetta sagt áður ???

Innlent | mbl.is | 14.11.2005 | 06:29

Tveir handteknir eftir að hafa riðið húsum á Akureyri

Tveir menn voru handteknir í miðbænum á Akureyri í nótt. Að sögn lögreglu hafði þeim verið vísað út af veitingastað en voru ekki sáttir við það og hófu að ríða húsum - berja staðinn utan með hnúum og hnefum. Við handtökuna fannst lítilræði af fíkniefnum á öðrum manninum. Þeir gista nú fangageymslur og verður tekin af þeim skýrsla er þeir vakna.

Ég hélt að ég væri alveg ágæt í svona gömlum orðatiltækjum og þh. en þetta er bara alveg stórfurðulegt !!!! Er hægt að segja svona ???


» 11 hafa sagt sína skoðun

09.11.2005 20:44:18 / sunnabb

:)

Ég var að enda við að hlusta á lagið um hana Söndru í Tröð og það er bara fyndið

http://www.rokk.is/default.asp?Flytjandi_ID=1860&sida=um_flytjanda (hún er gröð heitir lagið) ótrúleg tilviljun (ef þetta er þá tilviljun ????)  hmmmmm:haha::haha::haha:

Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar sem ég fékk, maður er allavega langt frá því að vera gleymdur J Við héldum aðeins upp á það í rólegheitum með Jóni og Jurgu. Jón Reynir eldaði ekkert smá góðan mat og svo skelltum við okkur á Zorro í bíó (alltaf jafn gott að geta bara skotist í bíó, ekkert að keyra 100km eins og heima). Ég fékk 2 þvílíkt flottar peysur frá Jóni og Jurgu, Tommy Hilfiger, þannig að ég á eftir að líta vel út í vetur J

Annars fara bara dagarnir í að lesa fyrir próf og næstum öll kvöldin líka, en það er nú bara rúmur 1 mán eftir svo ég hlít að halda þetta út. Ég er allavega búin að plana það að á þriðju önn ætla ég að fara í bæinn og djamma og djamma hverja helgi báða dagana og lesa eins mikið af tímaritum og skáldsögum og ég kemst yfir, ég hlakka ekkert smá til J

Helgin hjá mér var frekar róleg en Jónarnir 2 fóru á handboltaleik á laugardaginn (Århus – Haukar) og komu svona hálfskrallandi heim aftur. Þeir hittu íslenska stelpu, hana Dagnýju, á strætóstoppistöð fyrir utan stadion og hún kom með þeim heim. Við sátum svo og spjölluðum og á meðan buðu þeir hálfu kollegiinu í partý kl. 7. það endaði reyndar ekkert illa, og var bara mjög skemmtilegt kvöld.

Jólabjórinn kom út á föstudaginn og það eru núna bara ekkert nema jólaauglýsingar í sjónvarpinu og nokkur hús komin með jólaseríur, manni finnst þetta vera nú heldur snemmt :/

Jón er byrjaður í tungumálaskólanum og ég held að það sé ekki hægt að vera svartsýnni og þrjóskari þegar kemur að því að læra dönsku. Mér finnst það allavega frekar fyndið.

 

 



Ég held að það komi ekkert meira frá mér í þetta skipti ..... bless á meðan !!!

 

 




» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3